Stefnur og samþykktir
Samþykktir
Í samþykktum Gildis getur meðal annars að líta reglur um hlutverk, tilgang og starfsemi sjóðsins, sjóðfélaga og réttindi þeirra og skyldur, skipan og umboð stjórnar og ársfund.
Áhættustefna
Markmið með áhættustýringu er að hafa góða sýn yfir þá áhættuþætti sem sjóðurinn stendur frammi fyrir og geti metið hugsanleg áhrif þeirra.
Fjárfestingarstefna
Fjárfestingarstefna Gildis er gerð með það að markmiði að ávaxta fé sjóðsins með hliðsjón af hagfelldustu kjörum sem í boði eru á hverjum tíma með tilliti til áhættu.
Ábyrgar fjárfestingar
Stefna um ábyrgar fjárfestingar er leiðarljós Gildis-lífeyrissjóðs, sem eiganda í þeim félögum sem hann fjárfestir í, á sviði umhverfismála og félagslegra málefna.
Hluthafastefna
Hluthafastefnan markar stefnu og stjórnarhætti Gildis sem eiganda í þeim félögum sem fjárfest er í.
Starfskjarastefna
Starfskjarastefnan tekur til starfskjara stjórnarmanna, framkvæmdastjóra, lykilstarfsmanna og annarra starfsmanna sjóðsins.
Persónuverndarstefna
Persónuverndarstefna sjóðsins mælir fyrir um grundvöll vinnslu persónuupplýsinga á vegum sjóðsins sem varða sjóðfélaga eða aðila sem þeim tengjast.
Starfsmannastefna
Markmið með starfsmannastefnu Gildis er að tryggja að sjóðurinn hafi á að skipa hæfu starfsfólki sem vinnur sem ein heild í góðu starfsumhverfi.
Jafnlaunastefna
Rekur áherslur Gildis-lífeyrissjóðs í jafnlaunamálum, meðal annars að greiða skuli sömu laun fyrir jafnverðmæt störf óháð kyni.
Samskipta- og siðareglur
Stjórn og starfsfólk Gildis hefur siðareglur sjóðsins til hliðsjónar við öll störf sín.
Aðildarfélög Gildis
Tíu stéttarfélög eiga aðild að Gildi. Öllum atvinnurekendum með rekstur í þeim starfsgreinum sem stéttarfélögin tíu hafa gert kjarasamning um, er skylt að greiða lífeyrisiðgjöld starfsmanna sinna til samtryggingar Gildis.
Ásamt stéttarfélögunum tíu eiga Samtök atvinnulífsins aðild að Gildi.
Iðgjöldin eru greidd í þeim hlutföllum sem viðkomandi kjarasamningur greinir. Aðild að Gildi er þannig skyldubundin og óheimilt að greiða í samtryggingarsjóði annarra lífeyrissjóða.
Stéttarfélögin sem eiga aðild að Gildi eru: