30. mars 2009
Yfirlýsing vegna umfjöllunar Morgunblaðsins um lífeyrissjóði sunnudaginn 29. mars.
Vegna umfjöllunar um stöðu lífeyrissjóða og lúxusferðir stjórnenda sjóðanna í Morgunblaðinu sunnudaginn 29. mars 2009 vill Gildi-lífeyrissjóður upplýsa eftirfarandi:
Við fall íslensku bankanna í október 2008 varð markaður með innlend skuldabréf önnur en ríkisskuldabréf nánast óvirkur. Útgefendur skráðra skuldabréfa hafa síðan verið teknir til gjaldþrotaskipta, þeir hafa óskað eftir greiðslustöðvun og nokkrir hafa óskað eftir frestun á greiðslu afborgana og vaxta. Þá er óvíst hvernig mörgum þessara félaga mun reiða af á næstu árum.
Lífeyrissjóðurinn á einnig kröfur á viðskiptabankana. Í uppgjöri sjóðsins er gengið útfrá að þessum kröfum verði að mestu leyti skuldajafnað á móti neikvæðri stöðu gjaldmiðla-samninga sem sjóðurinn hafði gert við bankana. Hver niðurstaðan verður varðandi skuldajöfnun og uppgjör þessara samninga getur því haft veruleg áhrif á fjárhagsstöðu sjóðsins.
Mikil óvissa ríkir því um raunverulegt verðmæti þeirra verðbréfa sem sjóðurinn á og er gerð grein fyrir þeirri óvissu í ársreikningi sjóðsins. Við mat á eignum í uppgjöri fyrir árið 2008 var byggt á bestu fáanlegu upplýsingum um stöðuna á þeim tíma og voru verðbréf sjóðsins færð verulega niður. Gengið var frá ársreikningi 6. mars sl. og hann undirritaður af stjórn, framkvæmdastjóra og endurskoðanda sjóðsins.
Hluti af því að vera stór fjárfestir er að kynna sér starfsemi fyrirtækja sem sjóðurinn er hluthafi í eða hefur hug á að fjárfesta í og einnig eru samskipti við þá aðila sem sjóðurinn hefur samið við um vörslu á hluta eigna sjóðsins mikilvæg. Í því skyni sækja starfsmenn fjölda funda og kynninga bæði innanlands og utan. Gildi-lífeyrissjóður tók ekki þátt í eftirtöldum ferðum sem nefndar eru í grein Morgunblaðsins sl. sunnudag: Laxveiði í Rússlandi, úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Aþenu í maí 2007, akstur lúxusbíla á skipulögðum akstursbrautum, Formúlu I kappaksturskeppni, golfferðum til útlanda, skíðaferðum og siglingum ýmis konar.