16. október 2010
Yfirlýsing af gefnu tilefni frá Gildi-lífeyrissjóði.
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag var fullyrt að saksóknari efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjórans hefði „ákveðið að mál lífeyrissjóðsins Gildis skuli sæta rannsókn embættisins.“ Þetta er rangt. Hið rétta er að erindi hefur borist efnahagsbrotadeild frá einstaklingi varðandi Gildi lífeyrissjóð en engin ákvörðun verið tekin hjá embættinu um viðbrögð við því. Saksóknari efnahagsbrotadeildar staðfesti þetta í dag.