24. mars 2009

Vegna umfjöllunar í Fréttablaðinu.

Í Fréttablaðinu 24. mars er frétt undir fyrirsögninni „Stjórnendur Gildis fóru í 35 boðsferðir“. Vegna fréttarinnar vill Gildi koma eftirfarandi leiðréttingu á framfæri:

VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna sendi Gildi nýlega bréf þar sem óskað var eftir upplýsingum um boðsferðir og gjafir sem stjórnendur sjóðsins hafa þegið á árunum 2005-2008 af fyrirtækjum sem sjóðurinn hefur fjárfest í. Í svari sjóðsins kemur m.a. fram að frá stofnun Gildis á árinu 2005 til dagsins í dag hafi fjórir starfsmenn sjóðsins, framkvæmdastjóri og 3 starfsmenn eignastýringar, samtals farið í 35 utanlandsferðir til þess að kynna sér starfsemi fyrirtækja sem sjóðurinn er hluthafi í og einnig til þess að kynna sér nýja mögulega fjárfestingarkosti.

Tæplega helmingur þessara ferða eða 17 voru skipulagðar kynnisferðir fyrir íslenska fjárfesta vegna fjárfestingarverkefna erlendis og greiddar af samstarfsaðilum sjóðsins. Kostnaður við aðrar ferðir var greiddur af sjóðnum.

Samkvæmt þeim reglum sem sjóðurinn hefur starfað eftir tóku starfsmenn sjóðsins þátt í slíkum ferðum ef innihald dagskrár og tilgangur ferðar var þekkingaröflun sem talið var að gæti nýst starfsmönnum í störfum sínum fyrir sjóðinn. Sjóðurinn tók ekki þátt í ferðum sem höfðu annan tilgang. Á undanförnum árum hefur sjóðurinn hafnað þátttöku í fjölda ferða sem ekki samrýmdust þeim reglum sem sjóðurinn starfar eftir.

Til baka í fréttir