12. desember 2009

Úttektarheimild á séreignarsparnaði hækkuð í 2,5 milljónir króna.

Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp sem heimilar rétthöfum séreignarsparnaðar, að taka út allt að 2,5 milljónir króna af viðbótarlífeyrissparnaði sínum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Heimildin miðast við inneign við gildistöku laganna 1. janúar 2010.

Á árinu 2009 var veitt heimild til úttektar á allt að 1 milljón króna og er heimildin því hækkuð um 1,5 milljónir króna nú um áramótin. Mánaðarleg útborgun er áfram kr. 111.111 að frádreginni staðgreiðslu og ræðst útgreiðslutíminn af heildarfjárhæð útgreiðslunnar.

Útgreiðslutímabilið verður allt að 23 mánuðir fyrir þá sem nýta sér fulla heimild eða 2,5 milljónir en útgreiðslutíminn styttist hlutfallslega ef um lægri upphæð er að ræða.

Heimildin gildir til 31. mars 2011.

Til baka í fréttir