24. október 2013
Úttekt á starfsemi Brúar II
Vegna umfjöllunar um framtakssjóðinn Brú II vill Gildi koma eftirfarandi á framfæri:
Eins og fram hefur komið í fréttum hafa Gildi-lífeyrissjóður og aðrir hluthafar í framtaks-sjóðnum Brú II ákveðið í samráði við forráðamenn Thule Investments, rekstraraðila Brúar II, að gerð verði óháð úttekt á fjárfestingum sjóðsins, framkvæmd þeirra, eftirliti, skattgreiðslum, hæfi stjórnenda, þóknunum og umbunum. Niðurstöður úttektarinnar verðar gerðar opinberar þegar þær liggja fyrir.
Á árinu 2005 samþykkti stjórn Gildis-lífeyrissjóðs að fjárfesta í framtakssjóðnum Brú II. Fjárfestingarloforð Gildis nam samtals 869 milljónum króna. Þar af hafa 692 m.kr. verið innkallaðar eða um 80% af áskriftarloforðinu. Í árslok 2012 var eign Gildis í Brú II bókfærð á 525 m.kr. eða á genginu 0,76. Í hálfsársuppgjöri Gildis á árinu 2013 var eignin í Brú II bókfærð á 364 m.kr. eða á genginu 0,52 eftir að hafa fengið 206 m.kr. útgreiðslu frá félaginu í byrjun ársins. Endanleg ávöxtun og árangur Brúar II liggur ekki fyrir en sjóðurinn á enn 5 fjárfestingar sem hann á eftir að koma í verð.