2. nóvember 2012
Um Gildi og hlutafjárútboð Eimskips.
Talsvert hefur verið fjallað um þá ákvörðun Gildis að taka ekki þátt í hlutafjárútboði Eimskips, m.a. vegna hárra kauprétta forstjóra og framkvæmdastjóra félagsins. Að gefnu tilefni vill lífeyrissjóðurinn koma eftirgreindu á framfæri:
Gildi-lífeyrissjóður á um 0,6% hlutabréfa í Eimskipafélagi Íslands sem sjóðurinn eignaðist í nauðasamningum félagsins á árinu 2009. Á aðalfundi félagsins þann 27. maí 2010 lá fyrir tillaga að kaupréttaráætlun og var hún samþykkt. Ástæða er hins vegar til að vekja athygli á því að tillagan gekk mun skemmra og var um margt frábrugðin þeim kaupréttum sem síðar voru gerðir. Í henni var ekkert fjallað um þá kauprétti sem veittir voru á árunum 2011 og 2012. Á aðal- og hluthafafundum félagsins á fyrrnefndum árum voru engar tillögur um frekari útfærslu kauprétta bornar undir hluthafa, hvorki um það hverjum yrðu boðnir slíkir kaupréttir né á hvaða gengi þeir skyldu vera. Vandséð er því að útfærsla kaupréttanna hafi verið í samræmi við starfskjarastefnu félagsins og lög um hlutafélög. Gildi sendi stjórnendum félagsins og Straumi, öðrum af umsjónaraðilum útboðsins, fyrirspurn vegna málsins þann 23. október. Svör við fyrirspurninni voru ófullnægjandi að mati Gildis.
Gildi-lífeyrissjóður hefur í dag sent Fjármálaeftirlitinu beiðni um rannsókn á því hvort rétt hafi verið staðið að útboði á hlutafé í Eimskipafélagi Íslands og einnig hvort útfærsla á kaupréttum til stjórnenda félagsins standist skoðun og samanburð við þá mynd sem dregin var upp af kaupréttum í skráningarlýsingu félagsins.