12. mars 2009
Tímabundin útgreiðsla séreignasparnaðar.
Samkvæmt lögum frá Alþingi samþykktum 10. mars 2009 geta sjóðfélagar yngri en 60 ára nú sótt um tímabundna útgreiðslu á séreignarsparnaði sínum. Heimildin gildir frá gildistöku laganna í mars 2009 til 1. október 2010.
Til hvatningar þeim er hafa svigrúm til áframhaldandi sparnaðar er nú hægt að draga allt að 6% framlag í séreignarsparnað frá tekjuskattsstofni á tímabilinu 1. mars 2009 – 1. október 2010, en hámarkið hefur verið 4%. Í þessu samhengi er vert að vekja athygli á kostum séreignarsparnaðar umfram önnur sparnaðarform, m.a. vegna mótframlags atvinnurekanda og hagstæðrar skattlagningar.
Helstu ákvæði laganna eru eftirfarandi:
- Heimilt er að greiða út allt að kr. 1.000.000 á 9 mánuðum eða kr. 111.111 á mánuði til sjóðfélaga.
- Greiddur er tekjuskattur af fjárhæðinni.
- Mánaðarleg útborgun getur að hámarki orðið eftir skatt kr. 69.778.
- Eingöngu er heimilt að taka út hjá einum vörsluaðila í einu.
- Útgreiðslur séreignarsparnaðar skulu hefjast eigi síðar en einum mánuði eftir að fullnægjandi umsókn berst vörsluaðila og greiðist mánaðarlega.
- Vörsluaðilar þurfa samþykki ríkisskattstjóra áður en útgreiðsla getur hafist.
- Sjóðfélagi getur afturkallað beiðni um útborgun.
- Útgreiðslan skerðir ekki barnabætur, vaxtabætur né atvinnuleysisbætur.
Greiðslutilhögun:
- Greitt er úr séreignardeild fyrsta virka dag hvers mánaðar. T.d. 1. apríl v/marsmánaðar.
- Umsókn þarf að berast fyrir 20. dag til að greiðsla berist fyrsta dag næsta mánaðar.
- Skila þarf inn skriflegri umsókn um útgreiðslu sem nálgast má hér að neðan.
Umsókn um útgreiðslu
Til að opna skjalið þarf að hafa Adobe reader. Ef þú hefur hann ekki getur þú nálgast hann .
Umsókn um útgreiðslu