5. nóvember 2008
Tilkynning til rétthafa í séreignardeild.
Eins og fram kom í frétt á heimasíðu sjóðsins í október sl. var lokað tímabundið fyrir útborgun og flutninga úr leiðum I og II í Séreignardeild Gildis vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamörkuðum. Var þetta talin nauðsynleg ráðstöfun til þess að gæta hagsmuna allra sjóðfélaga Séreignardeildarinnar á tímum óvissu um verðmæti eigna.
Gildi-lífeyrissjóður hefur nú í samráði við endurskoðanda sjóðsins metið áhrif nýliðinna atburða á innlendum fjármálamarkaði á fjárfestingaleiðir séreignardeildar og opnað hefur verið fyrir útborganir og flutninga. Reiknað hefur verið nýtt gengi á eignir Framtíðarsýnar I og II og það leiðrétt vegna falls bankanna og einnig hafa tiltekin skuldabréf verið færð niður. Nemur lækkunin á eignum Framtíðarsýnar I og II vegna þessa um 12%. Engin breyting er á gengi Framtíðarsýnar III sem er verðtryggður innlánsreikningur.
Sjóðfélagar eru hvattir til að halda sparnaði sínum áfram og njóta þar með 2% mótframlags launagreiðanda skv. kjarasamningum. Við viljum einnig benda sjóðfélögum okkar á að óráðlegt gæti verið að flytja inneign úr söfnunum þar sem vonast er til að afskriftir verði minni en reiknað hefur verið með.
Sú ákvörðun að ráðstafa öllum iðgjöldum séreignardeildar inn á innlánsreikninga er enn í gildi, meðan óvissa ríkir á fjármálamörkuðum.