12. maí 2010
Svar við bréfi Sjómannafélags Íslands dags. 29. apríl 2010.
Stjórn Sjómannafélags Íslands,
Skipholti 50d,
105 Reykjavík.
Reykjavík, 12. maí 2010.
Efni: Svar við bréfi Sjómannafélags Íslands dags. 29. apríl 2010, til stjórnar Gildis.
Gildi-lífeyrissjóður hefur móttekið bréf stjórnar Sjómannafélags Íslands dags. 29. apríl sl. þar sem lýst er þungum áhyggjum af stöðu Gildis. Í bréfinu kemur fram að félagið telur rétt að skylduaðild að ákveðnum lífeyrissjóðum verði aflétt. Þá er þess krafist að stjórn Gildis og framkvæmdastjóri segi af sér.
Hrun fjármálakerfisins á Íslandi í október 2008 hefur haft mikil áhrif á afkomu Gildis eins og annarra lífeyrissjóða og fjárfesta og því miður hefur Gildi eins og margir aðrir lífeyrissjóðir þurft að grípa til lækkunar réttinda. Það vill hins vegar gleymast að Gildi hækkaði réttindi um 7% árið 2006 og um 10% árið 2007. Þá fengu sjómenn 4,1% réttindahækkun við stofnun Gildis árið 2005. Þessar hækkanir eru umfram hækkun vísitölu neysluverðs sem lífeyrisgreiðslur miðast við. Réttindi sjómanna í Gildi hafa því á tímabilinu janúar 2005 til apríl 2010 (að teknu tilliti til 7% lækkunar réttinda) hækkað um 1,9% umfram hækkun vísitölunnar, sjá meðfylgjandi línurit.
Varðandi skylduaðild félaga í Sjómannafélagi Íslands að Gildi þá byggir hún á kjarasamningi. Félagið þarf því að snúa sér til viðsemjenda sinna en ekki lífeyrissjóðsins varðandi breytingu á þessu fyrirkomulagi.
Á ársfundi Gildis 28. apríl sl. var borin upp tillaga Jóhanns Páls Símonarsonar um að stjórn sjóðsins og framkvæmdastjóri segðu af sér. Tillagan var felld með öllum greiddum atkvæðum. Þrír fulltrúar Sjómannafélags Íslands sátu fundinn, þ.á.m. formaður félagsins, Helgi Kristinsson, og greiddi enginn þeirra atkvæði með tillögunni.
Ástæða er til að benda á að Sjómannafélag Íslands (áður Reykjavíkur) átti ávallt fulltrúa í stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna og bera þeir fulltrúar sömu ábyrgð á fjárfestingum sjóðsins og aðrir stjórnarmenn. Auk þess sat framkvæmdastjóri félagsins, Birgir Hólm Björgvinsson, í stjórn Gildis í tvö ár, frá apríl 2006 til apríl 2008. Bæði árin sem Birgir sat í stjórn samþykkti hann fjárfestingarstefnu sjóðsins og undirritaði ársreikninga án athugasemda og aldrei gerði hann athugasemdir við fjárfestingar sjóðsins né fjárfestingastefnu allan þann tíma sem hann sat í stjórninni.
F.h. Gildis-lífeyrissjóðs,
Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri
Afrit sent fjölmiðlum og stéttarfélögum sjómanna.
Til að sjá stærri og skýrari mynd, ýtið hér.
Sjá bréfið einnig hér.
Til að opna skjalið þarf að hafa Adobe reader. Ef þú hefur hann ekki getur þú nálgast hann hérna..
línurit.
Svar við bréfi Sjómannafélags Íslands dags. 29. apríl 2010.
hér.
hér.