1. júlí 2015
Stjórnvöld falla frá skerðingu á örorkuframlagi – lækkun réttinda dregin til baka.
Með lagabreytingu sem samþykkt var á Alþingi í gær, 30. júní, var skerðing sem ákveðin hafði verið á framlagi til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða dregin til baka. Í yfirlýsingu ríkisstjórnar í tengslum við gerð kjarasamninga sem samþykktir voru nýlega kom fram að stjórnvöld myndu beita sér fyrir því að draga til baka þá ákvörðun að lækka framlag úr ríkissjóði til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða. Það hefur nú verið gert með framangreindri lagabreytingu.
Á ársfundi Gildis-lífeyrissjóðs 15. apríl 2015 var samþykkt breyting á samþykktum sjóðsins sem hefði þýtt lækkun á réttindum sjóðfélaga frá og með janúar 2016. Sú breyting var nauðsynleg vegna þeirrar ákvörðunar stjórnvalda að skerða örorkuframlagið. Það er að sjálfsögðu fagnaðarefni að stjórnvöld hafi séð að sér og að ekki þurfi að grípa til lækkunar á réttindum sjóðfélaga. Boðað verður til aukaársfundar Gildis í haust þar sem lögð verður fram tillaga til breytinga á samþykktum sjóðsins þar sem áður samþykkt skerðing verður dregin til baka.