16. febrúar 2012
Skýrslan um starfsemi lífeyrissjóðanna.
Skýrslan sem nú hefur verið lögð fram um starfsemi íslensku lífeyrissjóðanna er viðamikil og bendir á margt sem betur má og mátti fara í starfsemi lífeyrissjóðanna. Í henni er að finna yfirlit og úttekt á starfsemi sjóðanna á árunum 2006 – 2010 og áhrif efnahagshrunsins 2008 á eignir sjóðanna. Ljóst er að Gildi eins og aðrir lífeyrissjóðir og aðrir fjárfestar urðu fyrir miklu tjóni við hrun fjármálakerfisins. Hefur það komið fram með skýrum hætti í ársreikningum Gildis undanfarin ár og einnig í kynningum á ársfundum sjóðsins og sjóðfélagafundum.
Í skýrslu Úttektarnefndarinnar eru margvíslegar upplýsingar sem skýra myndina af fjárfestingarstefnu, fjárfestingum og starfsumhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins. Þar er einnig að finna margar gagnlegar ábendingar og athugasemdir sem víst er að sjóðurinn muni skoða vandlega og nýta í stöðugri viðleitni sinni til að bæta vinnubrögð sín í eigna- og áhættustýringu. Þótt miklar breytingar hafi þegar átt sér stað í þeim efnum og brugðist hafi verið við mörgum af þeim athugasemdum sem fram koma í skýrslu Úttektarnefndar liggur nú fyrir áframhaldandi uppbygging og betrumbætur á því sviði innan sjóðsins.
Þegar tap lífeyrissjóðanna er skoðað er nauðsynlegt að hafa í huga það umhverfi og regluverk sem sjóðirnir bjuggu við. Þeim var skylt að fjárfesta fyrir ákveðinn hluta eigna sinna innanlands. Lítill markaður og tiltölulega fábreyttir fjárfestingakostir ollu því að áhætta sjóðsins af áföllum í íslenska hagkerfinu var og er umtalsverð.
Gildi telur einnig mikilvægt þegar tjón sjóðsins er metið að horft sé á heildarniðurstöðu fyrir sjóðinn og tapið sett í samhengi við það sem gerðist árin fyrir bankahrun. Stór hluti þeirra bréfa sem töpuðust í hruninu höfðu áður hækkað mikið og á grundvelli þeirra hækkana höfðu réttindi sjóðfélaga verið aukin. Úttektarnefndin reiknar tap lífeyrissjóðanna af því verðmætamati sem í gildi var um áramótin 07/08. Það mat var enn hærra um mitt ár 2007 en fór eftir það lækkandi allt fram að hruni bankanna í október 2008. Þessi reikningsaðferð nefndarinnar er ekki röng. Engu að síður má einnig halda því fram að raunverulegt tap sjóðanna grundvallist á kaupverði bréfanna sem fyrst margfölduðust að verðmæti í uppsveiflunni en urðu síðan að engu í bankahruninu og þeim gjaldþrotum sem í kjölfarið fylgdu.
Af þessari ástæðu má deila um upphæðir í hinu raunverulega tapi lífeyrissjóðanna vegna hrunsins. Engum dylst samt að tjónið er umtalsvert en rétt er að hafa það í huga að það er á margan hátt sambærilegt við það sem lífeyris- og fjárfestingasjóðir í nágrannalöndum okkar og víðar um heim hafa orðið að þola. Eignir erlendra lífeyrissjóða lækkuðu mikið á árinu 2008 vegna mikillar lækkunar á erlendum hlutabréfamörkuðum, en heimsvísitala hlutabréfa lækkaði um 42% á árinu. Ólíkt því sem gerðist erlendis var lækkunin á íslenska markaðnum að stærstum hluta varanleg þar sem flest félaganna urðu gjaldþrota. Sú staðreynd að Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 94% á árinu 2008 talar skýru máli í þeim efnum.
Skýrslu Úttektarnefndarinnar má finna á vefsetri Landssamtaka lífeyrissjóða.