15. apríl 2013
Sjóðfélagayfirlit eru nú í póstdreifingu
Sjóðfélagayfirlit eru nú í póstdreifingu og ættu að berast sjóðfélögum allra næstu daga.
Áríðandi er að sjóðfélagar beri saman iðgjaldagreiðslur á sjóðfélagayfirlitinu við greidd iðgjöld samkvæmt launaseðlum. Ef iðgjöld vantar inn á yfirlitið hvetjum við sjóðfélaga að hafa samband við launagreiðanda og/eða leita til starfsfólks sjóðsins í síma 515-4700. Einnig er hægt að senda póst á netfangið gildi@gildi.is
Athugið að ekki er óeðlilegt að greiðslur síðustu tveggja mánaða vanti á yfirlitið vegna þess greiðslufrests sem fyrirtækin hafa fyrir greiðslur iðgjalda.
Þá viljum við minna á sjóðfélagavefinn okkar þar sem alltaf er hægt að fá nýjustu upplýsingar um stöðuna hjá sjóðnum og aðgang að yfirlitum sem send hafa verið sjóðfélögum. Þar er einnig hægt að afpanta sjóðfélagsyfirlit á pappír, sem við hvetjum til.
Allir sjóðfélagar eiga að vera búnir að fá veflykil að sjóðfélagavefnum, en ef hann er ekki til staðar er hægt að sækja um hann á vefnum eða senda beiðni á netfangið gildi@gildi.is. Hægt er að fara inn á sjóðfélagavefinn með því að ýta hér.