27. október 2025
Sjóðfélagafundur Gildis 12. nóvember 2025
Gildi-lífeyrissjóður stendur fyrir opnum sjóðfélaga- og fulltrúaráðsfundi miðvikudaginn 12. nóvember klukkan 17.00 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Staða og starfsemi Gildis á árinu 2025.
- Áform stjórnvalda um afnám jöfnunarframlags og áhrif þess á sjóðfélaga Gildis.
- Önnur mál.
Nánari upplýsingar um fundinn, sem og aðgangur að streymi, má finna hér:
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um stöðu og framtíð lífeyrissjóðsins.