15. nóvember 2011
Sjóðfélagafundur 23. nóvember 2011
Kynningar- og fræðslufundur verður haldinn fyrir sjóðfélaga Gildis-lífeyrissjóðs miðvikudaginn 23. nóvember nk. kl. 17.00 á Nordica Hilton Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1. Staða Gildis
– Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri Gildis.
2. Erlendar eignir lífeyrissjóða. Glatað fé eða gulls ígildi?
– Sigurður B. Stefánsson, sjóðstjóri í Eignastýringu Landsbankans
3. Af vöxtum og verðbólgu. Hvaða áhrif hefur breytt ávöxtunarkrafa og afnám verðtryggingar á lífeyrissjóðina?
– Benedikt Jóhannesson tryggingastærðfræðingur