16. apríl 2015
Samþykktabreytingar vegna skerðingar ríkisins á örorkuframlagi til Gildis
Sú ákvörðun ríkisstjórnar að lækka örorkuframlag til Gildis-lífeyrissjóðs hefur vakið hörð viðbrögð meðal sjóðfélaga Gildis.
Það hefur verið almenn sátt um að lífeyrissjóðir sem bæru þunga örorkubyrði fengju árlegar greiðslur til þess að sjóðfélagar m.a. Gildis stæðu ekki uppi með lakari ellilífeyri sökum hærri greiðslubyrði af örorkulífeyri. Þannig hafa Gildi-lífeyrissjóði verið tryggð árleg framlög af tryggingagjaldi.
Fyrir hvern ársfund Gildis metur tryggingastærðfræðingur sjóðsins hvað örorkuframlagið eitt og sér gefur til réttindaaukningar og greiðslu viðbótarlífeyris. Í samþykktum sjóðsins er kveðið á um hvert árlegt framlag til hækkunar réttinda og greiðslna skuli vera. Hefði örorkuframlag ríkisins fyrir árið 2015 verið óbreytt eða um 1,1 milljarður króna, þá hefði samkvæmt mati tryggingastærðfræðings sjóðsins verið lagt fyrir ársfund Gildis að ráðstöfunarhlutfallið færi úr 4,5% í 4,7%.
Lækkun örorkuframlags ríkisins á árinu 2015 gefur að mati tryggingastærðfræðings sjóðsins svigrúm til þess að ráðstafa 4,2% til að hækka réttindi lífeyrisþega og greiðandi sjóðfélaga.
Á ársfundi sjóðsins sem haldinn var 15. apríl síðastliðinn var stjórn Gildis því nauðugur einn kostur að leggja fyrir ársfundinn að lækka ráðstöfunarhlutfallið úr 4,5% í 4,2%. Kemur sú lækkun til framkvæmda í ársbyrjun 2016.
Það þarf því engan að undra að sjóðfélagar Gildis séu ósáttir með þá ákvörðun ríkisstjórnar að lækka örorkuframlagið, ekki síst í ljósi þess að á árinu 2014 var hlutfall örorkulífeyris af heildarlífeyrisgreiðslum 32% og námu örorkulífeyrisgreiðslur hjá Gildi rúmlega 3,5 milljörðum króna.