6. janúar 2015
Samruni Gildis og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga tók gildi 1. janúar.
Samruni Gildis-lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga tók gildi 1. janúar 2015. Gildi hefur því tekið við öllum eignum og skuldbindingum Lsj. Vestfirðinga. Sjóðurinn verður með starfsstöð að Hafnarstræti 9, Ísafirði.