26. september 2014
Samrunasamningur Gildis og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga. Sjóðfélagafundur 28. október – aukaársfundur 3. desember.
Stjórnir Gildis-lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga hafa undirritað samning um samruna sjóðanna sem taki gildi 1. janúar 2015. Gildi taki þá við öllum eignum og skuldbindingum Lsj. Vestfirðinga sem þá sameinist Gildi.
Sjóðfélagafundur verður haldinn hjá Gildi þriðjudaginn 28. október kl. 17.00 til þess að kynna samrunasamninginn. Á fundinum verður jafnframt kynnt staða sjóðsins.
Þá verður haldinn aukaársfundur Gildis miðvikudaginn 3. desember kl. 17.00 þar sem samrunasamningurinn verður borinn undir fulltrúaráð sjóðsins til samþykktar ásamt þeim breytingum á samþykktum sjóðsins sem eru nauðsynlegar vegna samrunans.
Báðir fundirnir verða haldnir á Grand Hótel, Reykjavík og nánar auglýstir síðar.