12. desember 2014

Samrunasamningur Gildis og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga endanlega staðfestur.

Samrunasamningur Gildis-lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga hefur nú verið endanlega staðfestur. Á aukaársfundi Lífeyrissjóðs Vestfirðinga í gær, 11. desember, var samningurinn samþykktur samhljóða af fulltrúaráði sjóðsins. Eins og áður hefur komið fram var samningurinn samþykktur á aukaársfundi Gildis-lífeyrissjóðs 3. desember sl. Samruninn tekur gildi 1. janúar 2015 en þá tekur Gildi við öllum eignum og skuldbindingum Lsj. Vestfirðinga sem þá sameinast Gildi.

Til baka í fréttir