8. mars 2011

Samkomulag um aðlögun skulda í 110% af verðmæti fasteigna.

Gildi-lífeyrissjóður er aðili að samkomulagi stjórnvalda, fjármálafyrirtækja, Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóða um aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila. Samkomulagið felur í sér að sjóðfélögum sem eru með veðskuldir hjá sjóðnum umfram 110 % af verðmæti fasteignar býðst að færa veðskuldirnar niður að 110 % af verðmæti eigna að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Helstu efnisatriði samkomulagsins eru eftirfarandi:

Heimilum þar sem ákvílandi veðskuldir eru umfram 110 % af verðmæti fasteignar, býðst að færa veðskuldir sínar niður að 110% af verðmæti eignar. Skilyrði fyrir niðurfellingu skulda er að umsækjandi og /eða maki séu eigendur hinna veðsettu eigna, greiðendur ákvílandi lána og að eignin sé notuð til heimilishalds umsækjanda.

Heimilt er að sækja um niðurfellingu allt að 4 m.kr fyrir einstaklinga og 7 m.kr. fyrir einstæða foreldra, sambýlisfólk og hjón. Ofangreind lækkun skulda miðast við að greiðslubyrði lántaka af lánum sem samkomulag þetta tekur til sé ekki lægri en sem svarar 18-20% af tekjum. Tekið verður tillit til annarra aðfararhæfra eigna. Ef veðrými er á þeim eignum, lækkar niðurfærsla veðskulda sem því nemur.

Hægt er að óska eftir frekari niðurfellingu skulda umfram 110% af verðmæti fasteignar og getur niðurfærslan numið allt að 15 m.kr fyrir einstakling og 30 m.kr. fyrir einstæða foreldra, sambýlisfólk og hjón. Lækkun skulda takmarkast við 18-20% af tekjum.
Skuldir sem færa má niður samkvæmt samkomulagin eru skuldir sem stofnað var til vegna fasteignakaupa umsækjanda á árunum fyrir 2009 og hvíla með veði á eign sem er til heimilishalds lántakanda og uppfylla rétt til vaxtabóta.

Lántaki skal almennt snúa sér til þess kröfuhafa íbúðarláns sem er á aftasta veðrétti. Sá kröfuhafi sem lántaki leitar til, heldur utan um málið gagnvart öðrum kröfuhöfum. Sækja þarf um niðurfellingu fyrir 1. júlí 2011.

Umsóknareyðublað um lækkun veðskulda er í vinnslu og verður sett inn á heimasíðu fljótlega. Niðurfelling mun miðast við 1. janúar 2011 og tekur nýr höfuðstóll gildi frá og með þeim tíma.

Samkomulagið er hægt að lesa í heild sinni hér.

Til að opna skjalið þarf að hafa Adobe Reader. Ef þú hefur hann ekki getur þú nálgast hann hérna.

hér

Til baka í fréttir