4. apríl 2025

Óverðtryggðir vextir Gildis lækka

Stjórn Gildis hefur ákveðið að lækka óverðtryggða vexti sjóðsins um 0,25%. Breytingin tekur gildi næsta mánudag, þ.e. 7. apríl. Verðtryggðir vextir sjóðsins taka ekki breytingum að þessu sinni.

Eftir lækkunina mun vaxtatafla sjóðsins líta svona út:

Grunnlán (allt að 60% veðhlutfall)Viðbótarlán (60 – 70% veðhlutfall)
Verðtryggð – fastir vextir4,30%5,05%
Verðtryggð – breytilegir vextir4,30%5,05%
Óverðtryggð – breytilegir vextir9,25%10,0%
Til baka í fréttir