28. maí 2014
Opið fyrir umsóknir um ráðstöfun séreignarsparnaðar.
Á vefnum leidretting.is hefur nú verið opnað fyrir umsóknir um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán. Á vefnum má finna góðar upplýsingar um ráðstöfunina og einnig um leiðréttingu verðtryggðra húsnæðislána.
Nánari upplýsingar um ráðstöfunina má finna hér og einnig á vefnum leidretting.is
Ef fólk ætlar að nýta sér þetta þarf að vera til staðar samningur um greiðslur í séreignarsjóð. Smelltu hér til að sækja um séreignarsparnað hjá Séreignarsjóði Gildis. Þú færð samninginn sendan heim til undirritunar og umslag fylgir sem má setja ófrímerkt í póst. Sjóðurinn sér um öll samskipti við launagreiðandann og sendir honum samninginn. Einfalt og þægilegt!
Kynntu þér nánar Séreignarsjóð Gildis á gildi.is/sereign. Hér getur þú skoðað ávöxtunarmöguleika og ávöxtunartölur undanfarinna ára.