6. desember 2008

Nýr og öflugur launagreiðendavefur.

06.12.2008 Nýr og öflugur launagreiðendavefur hefur verið opnaður á heimasíðu sjóðsins. Hann gerir launagreiðendum m.a. kleift ganga frá skilagreinum vegna lífeyrisiðgjalda á skjótvirkan og auðveldan hátt og þá er hægt að fá góða yfirsýn yfir innsendar skilagreinar og greiðslur iðgjalda.

Meðal nýjunga sem vert er að vekja athygli á er að nú er hægt að skrá sig inn á vefinn með rafrænum skilríkjum. Rafræn skilríki eru að ryðja sér til rúms og á næstu mánuðum verða gefin út ný debetkort sem innihalda örgjörva með rafrænum skilríkjum sem hægt er að nota við innskráningu á vefinn. Einnig getur launagreiðandi nú stofnað kröfu um greiðslu í eigin heimabanka.

Bréf með upplýsingum um nýja vefinn og veflykil að honum hefur verið sent út til allra þeirra launagreiðenda sem haft hafa aðgang að eldri launagreiðendavef og skilað hafa til sjóðsins síðustu 2 ár. Vakin er athygli á því að eldri veflyklar gilda ekki fyrir nýja launagreiðendavefinn.

Til baka í fréttir