1. apríl 2006

Nafnávöxtun Gildis 22,6% – réttindi hækkuð um 7%.

Nafnávöxtun Gildis-lífeyrissjóðs var 22,6% á árinu 2005 eða 17,8% raunávöxtun. Árið 2005 var fyrsta starfsár Gildis-lífeyrissjóðs, en sjóðurinn varð til við samruna Lífeyrissjóðsins Framsýnar og Lífeyrissjóðs sjómanna. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar sl. 5 ár er 8,6% að teknu tilliti til ávöxtunar eldri sjóða árin 2001-2004.

Þessa góðu ávöxtun á nýliðnu ári má rekja til fjárfestingarstefnu sjóðsins og hagstæðra skilyrða á verðbréfamörkuðum, sérstaklega innanlands. Innlend hlutabréf sjóðsins hækkuðu um 71,5% á meðan Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkaði um 64,7%, en vægi innlendra hlutabréfa í eignasafni sjóðsins jókst á árinu. Ávöxtun á erlendum hlutabréfum var ágæt á árinu, erlend hlutabréfaeign sjóðsins hækkaði um 16,3% í krónum, en heimsvísitalan hækkaði um 12,2%.

Fjárfestingartekjur námu samtals 33,3 milljörðum króna og hækkuðu um tæpa 10 milljarða á milli ára. Hrein eign til greiðslu lífeyris var 181,3 milljarðar kr. í árslok 2005 og hækkaði hún um 35,5 milljarða frá fyrra ári eða 24,4%. Eignaskiptingin var með eftirfarandi hætti í árslok 2005: 53% af eignum sjóðsins voru í innlendum skuldabréfum, 25% í innlendum hlutabréfum og 22% í erlendum verðbréfum.

Á árinu greiddu 3.933 launagreiðendur iðgjöld til sjóðsins, samtals að fjárhæð 6.627 milljónir króna, fyrir 38.951 sjóðfélaga. Sjóðfélagar í árslok 2005 voru samtals 164.135. Lífeyrisgreiðslur námu 4.125 milljónum króna og heildarfjöldi þeirra sem fékk greiddan lífeyri á árinu var 13.629.

Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt sem miðast við stöðu sjóðsins í árslok 2005 eru eignir 10,8% umfram heildarskuldbindingar. Í ljósi þessarar góðu stöðu hefur stjórn sjóðsins ákveðið að leggja til við ársfund, sem haldinn verður 26. apríl, að áunnin réttindi sjóðfélaga og lífeyrisþega verði hækkuð um 7% frá 1. janúar 2006.

Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri sjóðsins, Árni Guðmundsson, í síma 515 4700.

Til baka í fréttir