4. nóvember 2013
Minnum á opið hús hjá Gildi-lífeyrissjóði 5. nóvember
Minnum sjóðfélaga á opið hús hjá sjóðnum þriðjudaginn 5. nóvember 2013 í tilefni af opnun Lífeyrisgáttarinnar. Skrifstofa sjóðsins verður opin til kl. 19:00, heitt verður á könnunni og sjóðfélagar eru hjartanlega velkomnir.
Sjóðfélagar eru að sjálfsögðu alltaf velkomnir að heimsækja sjóðinn en þennan dag eru sjóðfélagar hvattir til að kíkja í heimsókn. Sjóðfélögum gefst kostur á að kynna sér Lífeyrisgáttina, ræða við starfsfólk um lífeyrisréttindi sín og fá almennar upplýsingar um starfsemi sjóðsins.