31. maí 2010

Lífeyrissjóðir kaupa skuldabréf.

Lífeyrissjóðir flýta fyrir því að unnt sé að afnema gjaldeyrishöft með því að kaupa skuldabréf af Seðlabanka Íslands fyrir jafnvirði 88 milljarða króna.

Stjórnir 26 íslenskra lífeyrissjóða hafa samþykkt að kaupa ríkistryggð skuldabréf af Seðlabanka Íslands fyrir um 88 milljarða króna. Þetta eru annars vegar bréf sem Íbúðalánasjóður gaf út á sínum tíma og Landsbanki Íslands setti inn í Avens B.V., félag sem bankinn stofnaði árið 2008. Bréfin voru notuð þar sem veð fyrir lánum frá Seðlabankanum í Luxemborg. Hins vegar kaupa lífeyrissjóðirnir skuldabréf sem ríkissjóður Íslands og Seðlabanki eignuðust í kjölfar bankahrunsins.

Seðlabanki Íslands náði á dögunum fullum yfirráðum yfir eignum Avens með samningi við skiptastjóra Landsbankans í Luxemborg og við Seðlabanka Luxemborgar.

Samkomulagið er mikilvægt skref í átt að afnámi gjaldeyrishafta á Íslandi, enda var Avens stærsti einstaki erlendi eigandi skuldabréfa í íslenskum krónum.
Seðlabanki Íslands bauð lífeyrissjóðum að kaupa skuldabréf úr „pakkanum frá Luxemborg“ og önnur skuldabréf. Bréfin eru verðtryggð, að jafnaði til níu ára og ávöxtunarkrafan er 7,2%.
Forystusveit Landssamtaka lífeyrissjóða fjallaði um málið nú um helgina ásamt framkvæmdastjórum lífeyrissjóðanna. Þá var einnig efnt á sama tíma til stjórnarfunda í lífeyrissjóðunum.

Í gær (30. maí) varð að samkomulagi að 26 sjóðir kaupi skuldabréf af Seðlabanka Íslands fyrir 88 milljarða króna.

Af hálfu Seðlabankans var sett það skilyrði að lífeyrissjóðir fjármögnuðu kaupin með evrum. Lífeyrissjóðirnir selja því erlendar eignir sem nemur fjárfestingunni. Þess má geta að erlendar eignir íslenskra lífeyrissjóða námu alls 554 milljörðum króna í lok marsmánaðar 2010.

Kjörin á þessum skuldabréfum sem lífeyrissjóðirnir kaupa eru betri en bjóðast á markaðnum hér. Vissulega draga lífeyrissjóðir tímabundið úr dreifingu áhættu í fjárfestingum við að losa um erlendar eignir sínar og flytja fjármuni hingað til lands, en á hinn bóginn flýtir þessi mikla fjárfesting fyrir því að afnema gjaldeyrishöftin. Síðast en ekki síst er ávöxtunarkrafa skuldabréfanna umtalsvert hærri en miðað er við í tryggingafræðilegu uppgjöri lífeyrissjóða og ætla má að viðskiptin muni bæta tryggingafræðilega stöðu íslenska lífeyriskerfisins um 1-2%.

Arnar Sigurmundsson,
formaður Landssamtaka lífeyrissjóða,
sími 822 0351.

Hrafn Magnússon,
framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða,
sími 897 3558.

Nánari upplýsingar er að finna í fréttatilkynningu Seðlabanka Íslands frá 31. maí 2010.

Til baka í fréttir