29. október 2013
Lífeyrisgáttin – öll áunnin lífeyrisréttindi í samtryggingarsjóðum á einum stað.
Algengt er að fólk eigi lífeyrisréttindi í fleiri en einum sjóði, en ekki hefur verið auðvelt að hafa yfirlit yfir öll réttindin. Lífeyrisgáttin opnar nú fólki greiðan aðgang að upplýsingum um áunnin lífeyrisréttindi sín í öllum samtryggingarsjóðum sem það hefur greitt iðgjöld í.
Lífeyrisgáttina er að finna á heimasíðu Gildis – lífeyrissjóðs í gegnum sjóðfélagavefinn.
Farðu inn á sjóðfélagavef Gildis og sjáðu réttindi þín á einum stað, www.gildi.is
Hafir þú einhverjar spurningar varðandi lífeyrismál, þá svarar fræðsluvefurinn Gott að vita spurningum þínum.
Fréttatilkynning frá Landssamtökum lífeyrissjóða.
Fréttatilkynning frá Landssamtökum lífeyrissjóða.