14. september 2011
Lætur af störfum eftir 38 ára starf.
Örn Arnþórsson hefur látið af störfum sem skrifstofustjóri Gildis-lífeyrissjóðs eftir 38 ára farsælt starf fyrir lífeyrissjóðina. Við starfinu tekur Bjarney Sigurðardóttir.
Örn hóf störf hjá Endurskoðunarskrifstofu Gunnars Zoëga á árinu 1973 sem annaðist rekstur eftirtalinna lífeyrissjóða; Lífeyrissjóðs verksmiðjufólks, Lífeyrissjóðsins Sóknar, Lífeyrissjóðs verkstjóra, Lífeyrissjóðs matreiðslumanna og Almenns lífeyrissjóðs iðnaðarmanna. Þrír af þessum sjóðum stóðu að stofnun Lífeyrissjóðsins Framsýnar á árinu 1996 og var Örn skrifstofustjóri sjóðsins frá stofnun og síðar Gildis við sameiningu Framsýnar og Lífeyrissjóðs sjómanna í Gildi árið 2005. Til gamans má geta þess að í haust eru 20 ár síðan Örn hampaði Bermúdaskálinni, heimsmeistaratitli í brids, í Yokohama í Japan.
Gildi-lífeyrissjóður þakkar Erni fyrir óeigingjarnt og fórnfúst starf í þágu sjóðsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Bjarney Sigurðardóttir hefur gegnt starfi deildarstjóra séreignardeildar Gildis frá stofnun sjóðsins árið 2005 og áður hjá Lífeyrissjóðnum Framsýn, en hún hóf störf hjá sjóðnum árið 2000. Bjarney starfaði á árunum 1990 til 2000 hjá Landsbréfum við ráðgjöf og bókhald. Bjarney er 51 árs viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.