13. maí 2009
Lækkun á lífeyrisgreiðslum.
Á ársfundi Gildis – lífeyrissjóðs sem haldinn var 21. apríl 2009 var samþykkt tillaga stjórnar sjóðsins um að áunnin réttindi sjóðfélaga verði lækkuð um 10%. Tillaga þessi var byggð á ráðleggingum tryggingafræðings sjóðsins eftir tryggingafræðilega úttekt hans á stöðu sjóðsins 31. desember 2008.
Þessi 10% lækkun réttinda gildir jafnt fyrir þá sem njóta lífeyris úr sjóðnum og þá sem eiga geymd lífeyrisréttindi.
Lækkun lífeyrisgreiðslna kemur til framkvæmda við næstu greiðslu 1. júní 2009.
Þeim lífeyrisþegum sem einnig fá greiðslur hjá Tryggingastofnun ríkisins er bent á að nauðsynlegt er að leggja þar inn nýja tekjuáætlun fyrir árið 2009 vegna minnkandi greiðslna úr lífeyrissjóðnum þar sem margir geta átt rétt á hækkun frá Tryggingastofnun vegna þessarar lækkunar. Gildi – lífeyrissjóður harmar að til þessarar lækkunar þurfi að koma, en vill benda á að réttindi og lífeyrisgreiðslur voru hækkuð um 7% frá 1. janúar 2006 og síðan um 10% frá 1. janúar 2007 og að þessar hækkanir eru umfram þær vísitöluhækkanir sem hafa komið á allar lífeyrisgreiðslur.