27. október 2009

Kynningarfundur fyrir sjóðfélaga.

Á fundinum var fjallað um eftirlit með starfsemi lífeyrissjóða, hugsanlega aðkomu lífeyrissjóða að enduruppbyggingu og fjármögnun stórra framkvæmda og kynntar voru samskipta- og siðareglur sjóðsins. Þá var gerð grein fyrir stöðu sjóðsins 30. september 2009.

Fram kom m.a. að iðgjöld fyrstu 9 mánuði ársins 2009 námu 8 milljörðum króna og lækkuðu um 5% m.v. sama tíma í fyrra. Lífeyrisgreiðslur voru 5.512 milljónir króna eða rúmlega 14% hærri en á sama tíma 2008.

Eignir sjóðsins hafa hækkað um 12 milljarða króna á árinu og námu í lok september 221 milljarði króna. Nafnávöxtun sjóðsins fyrstu 9 mánuði ársins var 5,7% á ársgrundvelli eða -2% raunávöxtun. Fjármagnstekjur eftir niðurfærslu á skuldabréfum fyrirtækja og fjármálastofnana námu 8,7 milljörðum króna. Veruleg óvissa er varðandi uppgjör sjóðsins á afleiðusamningum við gömlu viðskiptabankana og einnig varðandi endanlegt tap vegna skuldabréfa fyrirtækja og fjármálastofnana.

Erlendir markaðir hafa verið hagstæðir á árinu og hækkaði heimsvísitala hlutabréfa (MSCI) um 22% fyrstu 9 mánuði ársins.

Eignir sjóðsins skiptust þannig í lok september 2009 að 67% voru í innlendum skuldabréfum, 2% í innlendum hlutabréfum og 31% í erlendum verðbréfum.

Eftirtalin erindi voru flutt á fundinum:

Eftirlit með starfsemi lífeyrissjóða. Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðandi

Staða sjóðsins. Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis – lífeyrissjóðs

Samskipta- og siðareglur fyrir stjórn og starfsmenn Gildis – lífeyrissjóðs. Vilhjámur Egilsson, formaður stjórnar Gildis – lífeyrissjóðs

Lífeyrissjóðir og uppbygging atvinnulífsins. Þorbjörn Guðmundsson framkvæmdastjóri Samiðnar.

Punktar frá kynningarfundi Gildis fyrir sjóðfélaga.

Eftirlit með starfsemi lífeyrissjóða

Staða sjóðsins

Samskipta- og siðareglur fyrir stjórn og starfsmenn Gildis – lífeyrissjóðs

Lífeyrissjóðir og uppbygging atvinnulífsins

Punktar frá kynningarfundi Gildis fyrir sjóðfélaga

Til baka í fréttir