25. september 2012

Íslenskir lífeyrissjóðir í hópi þeirra bestu

Samkvæmt nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) eru lífeyrissjóðir á Íslandi, ásamt lífeyrissjóðum í Danmörku, Hollandi og Ástralíu, að skila að meðaltali mestri ávöxtun. Þar kemur fram að árið 2011 skiluðu íslensku lífeyrissjóðirnir 2,3% ávöxtun.

Þar kemur einnig fram að eignir lífeyrissjóða í ríkjum innan OECD námu að meðaltali um 72,4% af vergri landsframleiðslu í lok ársins 2011. Mestar eru eignirnar í Hollandi, eða um 138% af vergri landsframleiðslu, 128,7% á Íslandi og 92,8% í Ástralíu.

Frétt þessa efnis birtist á vef stofnunarinnar og er hægt að nálgast hana hér.

Til baka í fréttir