29. mars 2016

Hrein raunávöxtun 7,7%

Gildi-lífeyrissjóður hefur kynnt niðurstöður ársuppgjörs fyrir árið 2015. Nafnávöxtun samtryggingadeildar var 10,1% og hrein raunávöxtun 7,7%.

Á árinu greiddu um 46.300 sjóðfélagar til Gildis og 20.600 manns fengu greiddan lífeyri úr sjóðnum. Tryggingafræðileg staða sjóðsins batnaði verulega milli ára, en eignir í árslok 2015 voru 1,4% umfram heildarskuldbindingar.

Hrein eign samtryggingardeildar til greiðslu lífeyris nam 451.050 m.kr. í árslok 2015 og hækkaði á árinu um 82.785 m.kr., þar af eru 37.080 m.kr. vegna sameiningar Lífeyrissjóðs Vestfirðinga við sjóðinn. Hrein eign séreignardeildar í árslok 2015 var 4.013 m.kr. og hækkaði um 940 m.kr. frá fyrra ári, þar af eru 607 m.kr. vegna sameiningar séreignarleiðar Lífeyrissjóðs Vestfirðinga við sjóðinn.

Frekari upplýsingar og yfirlit yfir starfsemi sjóðsins má sjá hér.

hér

Til baka í fréttir