19. desember 2014
Hagstæðir og fjölbreyttir kostir í sjóðfélagalánum Gildis.
Á undanförnum misserum hefur Gildi-lífeyrissjóður lagt áherslu á að bjóða sjóðfélögum upp á fjölbreytta kosti í sjóðfélagalánum og hagstæð kjör. Fjárfestingar sjóðsins miðast þó ávallt við að ávaxta fé sjóðsins með hliðsjón af þeim kjörum sem best bjóðast á hverjum tíma að teknu tilliti til áhættu.
Talsverðar breytingar voru gerðar á lánareglum sjóðsins í desember 2012, þ.m.t. á vaxtakjörum sjóðfélagalána þar sem að vextir sjóðfélagalána Gildis með breytilegum vöxtum lækkuðu í 3,1%. Hefur sjóðurinn haldið þeim vaxtakjörum óbreyttum þangað til nú. Breytilegir vextir af verðtryggðum sjóðfélagalánum hjá Gildi munu hækka úr 3,1% í 3,35% þann 5. janúar næstkomandi og hefur öllum greiðendum slíkra lána verið sent bréf þar sem gerð er grein fyrir vaxtabreytingunni í samræmi við lög um neytendalán.
Þótt stýrivextir Seðlabankans hafi nýlega lækkað hefur raunvaxtastig hér á landi hækkað umtalsvert á undanförnum misserum. Gildi vill vekja athygli á því að hækkun á breytilegum vöxtum sjóðfélagalána í 3,35% nú er hófleg í samhengi við þróun innlends raunvaxtastigs og í samhengi við þróun vaxta á íbúðalánamarkaði almennt. Kjörin eru sem fyrr ein þau bestu sem bjóðast á íbúðalánamarkaði hér á landi.
Þess má geta til viðbótar að fastir vextir sjóðfélagalána Gildis hafa ekki hækkað á umræddu tímabili og hafa raunar aldrei verið lægri.
Í byrjun næsta árs mun sjóðfélögum einnig bjóðast sá möguleiki að taka óverðtryggð lán sem eykur enn á fjölbreytta möguleika sjóðfélaga í lánakjörum.