27. desember 2006

Hækkun á mótframlagi í lífeyrissjóð og á greiðslum í starfsmenntasjóð.

Hækkun á mótframlagi í lífeyrissjóð úr 7% í 8%

Frá 1. janúar 2007 hækkar mótframlag atvinnurekenda úr 7% í 8% samkvæmt kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins frá 7. mars 2004. Lágmarksiðgjald frá áramótum verður því 12%, þ.e. 4% iðgjald starfsmanns og 8% iðgjald atvinnurekenda.

Hækkun á greiðslum í starfsmenntasjóð.

Frá 1. janúar 2007 hækkar einnig framlag atvinnurekenda í starfsmenntasjóð Eflingar-stéttarfélags og Verkalýðsfélagsins Hlífar samkvæmt sama kjarasamningi úr 0,05% í 0,15% af öllum launum.Frá 1. janúar 2007 ber því atvinnurekendum samkvæmt kjarasamningum þessara félaga að greiða til þeirra iðgjöld í sjúkrasjóð 1,0%, í orlofssjóð 0,25% og starfsmenntasjóðsgjald 0,15% eða samtals 1,40% af öllum launum.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 515 4700.

Sjá einnig bréf sent launagreiðendum.

Sjá einnig bréf sent launagreiðendum

Til baka í fréttir