14. október 2008

Greiðslur í séreignadeild Gildis – lífeyrissjóðs

Vegna hinna sérstöku aðstæðna á fjármálamörkuðum verður útreikningur í séreignadeild Gildis – lífeyrissjóðs leiðréttur til samræmis við áætlaðar verðlækkanir á mörkuðunum. Hins vegar munu þær greiðslur sem berast sjóðnum í framtíðinni ekki skerðast vegna þeirra lækkana.

Greiðslur sem nú eru að berast sjóðnum verða tímabundið ávaxtaðar á traustum innlánsreikningum þar til ástand á fjármálamörkuðum skýrist.

Til baka í fréttir