1. desember 2015

Gildi-lífeyrissjóður vísar ályktun Samkeppniseftirlitsins á bug

Gildi-lífeyrissjóður vísar alfarið á bug ályktun Samkeppniseftirlitsins um að eignarhald sjóðsins í Skeljungi og N1 geti haft skaðleg áhrif á eldsneytismarkaðinn. Ályktun þessi vekur furðu og er órökstudd.

Í nýútkominni skýrslu Samkeppniseftirlitsins um frumniðurstöður úr markaðsrannsókn á eldneytismarkaði er fjallað um eignarhald Gildis (og LSR) í Skeljungi og N1 og m.a. komist að framangreindri niðurstöðu. Þar segir einnig að eignarhald sjóðanna dragi úr hvata félaganna til þess að keppa á eldsneytismarkaðnum og auðveldi samhæfða hegðun á markaðnum.

Umfjöllun og ályktun Samkeppniseftirlitsins er til þess fallin að vekja tortryggni í garð eins stærsta lífeyrissjóðs landsins. Gildi-lífeyrissjóður tekur hlutverk sitt sem fjárfestir og hluthafi alvarlega og eins og fram kemur í hluthafastefnu sjóðsins er m.a. lögð áhersla á að þau félög sem hann fjárfestir í fylgi lögboðnum og góðum stjórnarháttum, standi vörð um réttindi allra hluthafa, fylgi lögum og reglum og gæti að samfélagslegri ábyrgð, umhverfismálum og viðskiptasiðferði. Sjóðurinn er mjög meðvitaður um stöðu sína sem fjárfestir á markaði og kappkostar að gæta sérstaklega að samkeppnissjónarmiðum eins og kemur fram í hluthafastefnu og fjárfestingarstefnu sjóðsins og Samkeppniseftirlitinu á að vera kunnugt um.

Rétt er að undirstrika að sjóðurinn kemur aldrei að daglegum rekstri félaga sem sjóðurinn á hlut í, svo sem ákvörðunum um verðlagningu. Gildi telur mjög mikilvægt að hvert félag starfi sjálfstætt að markmiðum sínum í samkeppni við önnur félög í sömu grein, óháð því hvort sjóðurinn á hlut í þeim félögum.

Stjórnarmenn í hlutafélögum starfa samkvæmt lögum í þágu allra hluthafa, án tillits til þess hvort þeir hafi notið stuðnings Gildis í stjórnarkjöri. Sjóðurinn gætir sérstaklega að samkeppnissjónarmiðum og mögulegum hagsmunaárekstrum við stjórnarkjör félaga. Þá hefur Gildi farið þá leið að tilnefna ekki starfsmenn né stjórnarmenn sjóðsins í stjórnir atvinnufyrirtækja.

Gildi-lífeyrissjóður vísar ályktun Samkeppniseftirlitsins varðandi eignarhald Gildis alfarið á bug og væntir þess að hún verði leiðrétt í lokaskýrslu eftirlitsins um efnið.

Til baka í fréttir