8. maí 2013

Gildi-lífeyrissjóður sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Í morgun var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur dómur í máli gegn Gildi-lífeyrissjóði þar sem reyndi á lögmæti veðsetningar í eign þriðja manns (lánsveð). Gerð var krafa um að veðsetning væri dæmd ógild vegna þess að sjóðurinn framkvæmdi ekki greiðslumat á skuldara áður en lánveiting fór fram. Sjóðurinn var sýknaður af öllum kröfum stefnanda.

Þetta er annað málið af þessum toga sem höfðað hefur verið gegn sjóðnum. 22. febrúar 2013 kvað Héraðsdómur Reykjavíkur upp sýknudóm í sams konar máli.

Í forsendum dómsins kom m.a. fram að stefnanda hafi mátt vera ljós sú áhætta sem felst í því að lána veð í fasteign sinni. Telja verði að stefndi (Gildi) hafi í yfirlýsingu sem stefnandi undirritaði gert skilmerkilega grein fyrir afleiðingum þess að lán fari í vanskil. Stefnandi geti ekki varpað ábyrgð yfir á stefnda með því að ekki hafi verið gert greiðslumat á skuldara sem engin lagaskylda er til að gera.

Dómana má sjá hér að neðan:

Mál nr. E-2303-2012 Dómur 8. maí 2013

Mál nr. E-2445-2012 Dómur 22. febrúar 2013

Mál nr. E-2303-2012 Dómur 8. maí 2013

Mál nr. E-2445-2012 Dómur 22. febrúar 2013

Til baka í fréttir