24. nóvember 2015
Gildi lækkar vexti á verðtryggðum lánum.
Gildi-lífeyrissjóður býður sjóðfélögum sínum nú lægstu föstu verðtryggðu vextina á húsnæðislánum frá upphafi eða 3,55%. Breytilegir vextir á verðtryggðum lánum sjóðsins eru nú frá 3,20% og á óverðtryggðum lánum frá 6,75%. Vextirnir eru með þeim lægstu sem í boði eru á húsnæðislánamarkaðnum í dag.
Sjóðfélagar Gildis njóta töluverðs sveigjanleika þegar kemur að húsnæðislánum sjóðsins. Hægt er að velja á milli verðtryggðra og óverðtryggðra lána, fastra og breytilegra vaxta. Lánstími er allt að 40 árum og veðhlutfall allt að 75%. Lántökugjaldið er 0,5% af lánsupphæð. Gildi hefur boðið sjóðfélögum sínum upp á húsnæðislán af þessu tagi frá árinu 2013.
Allir sem greitt hafa í Gildi og séreignarsjóði Gildis eiga rétt á láni frá sjóðnum.
Markmið Gildis með lánunum er að vera bakhjarl sjóðfélaga sinna í þessari mikilvægu fjárfestingu sem kaup á húsnæði er. Einnig eru sjóðfélagalán traustur fjárfestingarkostur og veitir áhættudreifingu í safni sjóðsins.
Gildi-lífeyrissjóður varð til við sameiningu Lífeyrissjóðsins Framsýnar og Lífeyrissjóðs sjómanna 1. júní 2005 og 1. janúar 2015 s.l. sameinaðist Lífeyrissjóður Vestfirðinga sjóðnum. Markmið sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum bestu lífeyrisréttindi sem kostur er á með öflugri áhættustýringu og ávöxtun iðgjalda.