15. janúar 2007
Framkvæmd tekjuathugunar frestað.
Stjórn Gildis hefur samþykkt að leggja fram á næsta ársfundi sjóðins, 25. apríl 2007, tillögu um að viðmiðunartekjur vegna örorkulífeyris taki breytingum í samræmi við launavísitölu í stað vísitölu neysluverðs. Þá hefur stjórnin ákveðið að tekjuathugun örorkulífeyrisþega sem koma átti til framkvæmda 1. febrúar nk. verði frestað þar til umræddar breytingar hafa hlotið staðfestingu viðkomandi stjórnvalda og verða þá viðmiðunartekjur ársins 2006 lagðar til grundvallar við samanburð á tekjum fyrir og eftir orkutap.