6. febrúar 2014

Frádráttarbært iðgjald í séreignarsjóð verður 4%

Þann 1. júlí næstkomandi verður frádráttarbært iðgjald launþega í séreignarsjóð allt að 4% að nýju.

Frá 1. janúar 2012 hefur iðgjaldið verið að hámarki 2% samkvæmt bráðabirgðarákvæði og átti sú lækkun að gilda fyrir tekjuárin 2012-2014. Í desember síðastliðnum var á Alþingi samþykkt breyting á lögum um tekjuskatt sem heimilar 4% frádráttarbært iðgjald launþega í séreignarsjóð frá og með 1. júlí 2014. Framlag launagreiðanda verður áfram 2%.

Til baka í fréttir