15. janúar 2016

Fjármálaeftirlitið gerir ekki athugasemdir við stjórnarhætti Gildis.

Fjármálaeftirlitið gerir ekki athugasemdir við stjórnarhætti Gildis-lífeyrissjóðs. Þetta er niðurstaða athugunar sem Fjármálaeftirlitið framkvæmdi á stjórnarháttum sjóðsins.

Athugunin hófst í júní 2015 með vísan til 29. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 1. mgr. 8. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Óskað var eftir ýmsum gögnum varðandi stjórnarhætti sjóðsins svo sem starfsreglum og fundargerðum stjórnar og endurskoðunarnefndar.

Fjármálaeftirlitið lauk yfirferð sinni á gögnum og upplýsingum í lok síðasta árs og hefur tilkynnt Gildi um niðurstöður sínar, en engar athugasemdir eru gerðar við stjórnarhætti sjóðsins.

Niðurstaðan er í samræmi við starfsreglur stjórnar sem er ætlað að styðja við góða stjórnarhætti í rekstri sjóðsins.

Til baka í fréttir