30. mars 2023
Dagskrá og fyrirkomulag ársfundar Gildis 2023
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs 2023 verður haldinn fimmtudaginn 27. apríl klukkan 17:00 á Hótel Natura Reykjavík. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Dagskrá ársfundar:
- Skýrsla stjórnar.
- Kynning ársreiknings.
- Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt, fjárfestingarstefnu og hluthafastefnu.
- Tillögur til breytinga á samþykktum.
- Starfskjarastefna - til staðfestingar.
- Kosning/skipan stjórnar.
- Ákvörðun launa stjórnarmanna.
- Kosning nefndar um laun stjórnarmanna.
- Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis.
- Önnur mál.
Boðið verður upp af streymi af fundinum en nánari upplýsingar um það verða birtar hér á heimasíðu Gildis þegar nær dregur fundi.
Fundargögn
Streymi
Ársfundi Gildis verður streymt hér á heimasíðu sjóðsins. Útsending hefst klukkan 17:00 fimmtudaginn 27. apríl. Vakin er athygli á að fulltrúar í fulltrúaráði Gildis sem vilja nýta atkvæðisrétt sinn á fundinum þurfa að mæta á staðinn.