3. júní 2020

Dagskrá ársfundar Gildis 2020

Ársfundur Gildis lífeyrissjóðs fer fram þriðjudaginn 16. júní kl. 17:00 á Grand Hótel Reykjavík.

Dagskrá (í samræmi við samþykktir sjóðsins):

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Kynning ársreiknings og tryggingafræðilegrar úttektar
  3. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu
  4. Gerð grein fyrir hluthafastefnu
  5. Áhrif hækkandi lífaldurs
  6. Starfskjarastefna – til staðfestingar
  7. Kosning/skipan stjórnar
  8. Ákvörðun launa stjórnarmanna
  9. Kosning nefndar um laun stjórnarmanna
  10. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis
  11. Önnur mál

Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti.

Vakin er athygli á að boðið verður upp á enska túlkun meðan á fundi stendur.

Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér eftirfarandi gögn fyrir fund:

Aðrar stefnur Gildis má finna hér.

Til baka í fréttir