20. desember 2011
Breytingar á lögum um séreignarsparnað – framlag launþega lækkar úr 4% í 2%
20.12.2011. Rétt fyrir jólahlé Alþingis voru samþykkt lög um breytingu er varða séreignarsparnað. Heimild til að draga iðgjöld launþega frá tekjuskattstofni er nú 2% í stað 4% áður. Breytingin er tímabundin til loka árs 2014.
Breytingin felur í sér að hámark á framlagi launþega í séreignarsparnað er lækkað úr 4% í 2%, en greiðsla launagreiðanda á 2% mótframlagi er óbreytt. Þessi breyting minnkar möguleika sjóðfélaga á að safna varasjóði um þriðjung, úr 6% af tekjum í 4%. Áfram nýtur þó launþegi góðs af þeim mikilvæga ávinningi að launagreiðandi leggur fram 2%, sem jafngildir viðbótarlaunum.
Breytingin á lögunum gerir ekki kröfu til breytinga á núgildandi samningum um séreignarsparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í séreignarsparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldastofni, nema launþeginn óski sjálfur eftir því. Það er þó almennt ekki ráðlegt vegna tvísköttunar. Iðgjöld umfram 2% eru þá skattlögð áður en þau eru lögð inn í séreignarsjóð og eru síðan skattlögð aftur þegar þau eru tekin út, eins og áður.
Breyting á þessum lögum er tímabundin og gildir til loka árs 2014, eins og fram hefur komið. Frá og með ársbyrjun 2015 verður heimild til frádráttar iðgjalda í séreignarsparnað frá tekjuskattstofni hækkuð á ný. Launagreiðandi ber þá að hækka framlag launþegans á ný í 4%, nema launþeginn óski annars.
Nánari upplýsingar eru veittar af starfsfólki sjóðsins í síma 515-4700 eins er hægt að senda fyrirspurn á gildi@gildi.is
Ítarlegri upplýsingar er að fá hér:
Tilkynning frá Landssamtökum lífeyrissjóða.
Auglýsingu frá Landssamtökum lífeyrissjóða.
Mikilvægt að greiða áfram í séreignarsparnað. Frétt frá Eflingu-stéttarfélagi.
Auglýsingu frá Landssamtökum lífeyrissjóða.