29. desember 2011
Breyting á útborgunardögum.
Stjórn Greiðslustofu lífeyrissjóða samþykkti breytingar á útborgunardögum. Í stað þess að útborgunardagur sé fyrsti dagur næsta mánaðar á eftir, eins og verið hefur, verður útborgun síðasta dag hvers mánaðar.
Breytingin hefur tekið gildi og verður útborgunardagur fyrir desember því 30. desember n.k.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sjóðsins í síma 515-4700.