20. nóvember 2015
Aukaársfundur Gildis í gær, 19. nóvember.
Um 70 manns mættu á aukaársfund Gildis-lífeyrissjóðs sem haldinn var á Grand hóteli í gær, 19. nóvember. Á fundinum var samþykkt tillaga til breytinga á samþykktum sjóðsins.
Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar, og Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis, fluttu erindi. Benedikt fjallaði um breyttar lífslíkur og áhrif þeirra á lífeyrissjóði og Árni fór yfir stöðu sjóðsins og helstu þætti í starfseminni. Þeir svöruðu síðan spurningum fundarmanna.
Kynningarglærur Benedikts eru hér.
Kynningarglærur Árna eru hér.
Tillaga til breytinga á samþykktum er hér.
hér
hér
hér