16. mars 2018
Ársfundur Gildis 2018 og tillögur til breytinga á samþykktum
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs 2018 verður haldinn fimmtudaginn 12. apríl kl. 17:00 á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Tillögur til breytinga á samþykktum
- Önnur mál, löglega upp borin
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.