12. desember 2011

Ákvörðun Neytendastofu byggð á röngum lagagrundvelli.

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Neytendastofu í máli Gildis og vísað málinu aftur til Neytendastofu til nýrrar meðferðar og ákvörðunar. Fyrri ákvörðun hennar hafi verið byggð á röngum lagagrundvelli.

Með ákvörðun nr. 29/2011 komst Neytendastofa að þeirri niðurstöðu að Gildi lífeyrissjóður hefði brotið gegn ákvæðum laga nr. 57/2005, eins og þeim var breytt með lögum nr. 50/2008, með því að gefa lántaka ekki nægar upplýsingar við gerð lánssamnings.

Við meðferð málsins hjá áfrýjunarnefnd kom fram að ákvörðun Neytendastofu væri byggð á röngum lagagrundvelli þar sem hún miðast við að lög 50/2008 hafi tekið gildi en umræddur lánssamningur var gerður fyrir gildistöku laga 50/2008. Vísaði því áfrýjunarnefndin málinu aftur til Neytendastofu til nýrrar meðferðar.

Til baka í fréttir