26. apríl 2012

Afkoma kynnt á ársfundi

Afkoma Gildis-lífeyrissjóðs árið 2011 var kynnt á ársfundi sjóðsins í gær, 25. apríl. Helstu niðurstöður uppgjörsins sem kynnt var á fundinum eru þessar:

Hrein eign til greiðslu lífeyris var 265,4 milljarðar króna í árslok og hækkaði um 24,3 milljarða króna frá árslokum 2010. Fjárfestingartekjur voru 20,3 milljarðar króna en voru 9,8 milljarðar árið 2010. Nafnávöxtun sjóðsins var 8,3% og raunávöxtun var 2,7%. Hrein meðalraunávöxtun sl. 10 ár er 2,7%.

Heildarskuldbindingar sjóðsins voru 4,9% hærri en eignir í lok árs 2011 samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt. Engar breytingar eru gerðar á réttindum sjóðfélaga, en lífeyrisgreiðslur eru verðtryggðar m.v. vísitölu neysluverðs.

Iðgjöld til sjóðsins á árinu 2011 voru 11,9 milljarðar króna og hækkuðu um 6,5% frá fyrra ári. Lífeyrisgreiðslur námu 8,2 milljörðum króna og hækkuðu um 4,8%.

Eignir sjóðsins skiptust þannig í lok árs 2011: 63% voru í innlendum skuldabréfum, 7% í innlendum hlutabréfum, 5% í innlánum og 25% í erlendum verðbréfum.

Alls greiddu 38.825 einstaklingar iðgjöld til Gildis árið 2011. Tæplega 185.000 einstaklingar eiga réttindi hjá sjóðnum.

Ný stjórn Gildis er þannig skipuð: Harpa Ólafsdóttir, formaður, Heiðrún Jónsdóttir, varaformaður, Árni Bjarnason, Hjörtur Gíslason, Kolbeinn Gunnarsson, Konráð Alfreðsson, Orri Hauksson og Ragnhildur Geirsdóttir.

Glærur frá ársfundinum eru hér.

Ársskýrsla Gildis fyrir árið 2011 er hér.

Spurningar Arnar Pálssonar á ársfundi – svör Gildis.

Fundargerð ársfundar 2012 er hér.

Til að opna skjölin þarf að hafa Adobe Reader. Ef þú hefur hann ekki getur þú nálgast hann hérna.

hér

hér

hér

Til baka í fréttir