1. mars 2013

Að þreyja Góuna

Í Morgunblaðinu í gær, 28. febrúar, birtist grein eftir Gunnar Baldvinsson formann Landssamtaka lífeyrissjóða og framkvæmdastjóra Almenna lífeyrissjóðsins.

Í greininni líkir Gunnar lífeyrismálum við búskap fyrri alda. Sömu gildi eiga við um lífeyrissparnað þar sem nútímafólk leggi fyrir á starfsæfinni og byggi upp eftirlaunasjóð og lífeyrisréttindi til að lifa af þegar vinnu lýkur og eftirlaunaárin taki við líkt og bændur og búalið birgðu sig upp á sumrin til að þreyja Þorrann og Góuna.

Gunnar nefnir að nýlega hafi birst greinar og auglýsingar í dagblöðum þar sem lífeyrissjóðirnir eru gagnrýndir fyrir að nota ekki eignir sínar í annað en að greiða lífeyri. Þar er því haldið fram að nota mætti eignir sjóðanna m.a. til að byggja hjúkrunarheimili fyrir aldraða og sjúka. Gunnar telur að þessi skoðun hljóti að stafa af misskilningi eða þekkingarleysi á lögum og tilgangi lífeyrissjóða að telja að lífeyrissjóðir geti ráðstafað fjármunum sjóðfélaga í annað en að greiða lífeyri. Sjóðirnir hafa ekki heimild til að ráðstafa iðgjöldunum í neitt annað.

Grein Gunnars er hér í heild sinni.

Grein Gunnars er hér í heild sinni.

Til baka í fréttir